Seduce you the song of the Siren will...
19.10.2006 11:33:44 / Archangel

Gone homeboy!

Jæja, þar sem að ég er hundlélegur við að halda mig við að blogga þá ætla ég að stofna síðu með Kitty!

Allir setja í favorites og bookmarks :

http://www.blog.central.is/fag-vs-faghag

Adios :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.08.2006 02:25:02 / Archangel

I miss Nightwish

"If you read this line, remember not the hand that wrote it Remember only the verse, songmaker's cry the one without tears For I've given this its strength and it has become my only strength. Comforting home, mother's lap, chance for immortality where being wanted became a thrill I never knew The sweet piano writing down my life" "Teach me passion for I fear it's gone Show me love, hold the lorn So much more I wanted to give to the ones who love me I'm sorry Time will tell (this bitter farewell) I live no more to shame nor me nor you And you... I wish I didn't feel for you anymore..." Nightwish - Deep Silent Complete

» 3 hafa sagt sína skoðun

06.07.2006 11:28:31 / Archangel

=)

Von í annað blogg, bara svona láta ykkur vita ;)

» 3 hafa sagt sína skoðun

17.06.2006 13:26:11 / Archangel

Varðandi málefnin

Já nú vill Aðalsteinn aðeins tjá sig um löggæslu á Íslandi, or the lack of it.

Í fyrsta lagi: Hvað er málið með lögreglumenn á Akureyri!? Um versló var ég persónulega vitni af því þegar að það var strákur stoppaður með hass á sér. Gaurinn fékk áminningu og það var ekki tekið af honum hassið. ÁMINNING?! WTF?! Erum við allveg veruleikafirrt eða? Þessir lögreglumenn voru greinilega nýliðar og frekar ungir, spilling spilling spilling. Lögreglan á Akureyri er annað hvort of löt eða of spillt, ég er ekki frá því að hún sé jafnvel bæði. Þá kemur afsökunin: "Lögreglan hefur ekki tíma til að taka sér fyrir hendur ummönnun á smærri málum." Það er í verkahring lögreglunnar og hún getur hunskast til að taka á öllum málum með jafn mikilli alvöru. Ef að hún væri að gera það, þá væri ekki jafn auðvelt að komast í hass og raun ber vitni. Því jú, það er það auðveldasta í heimi. Þegar ég er að hanga með mínum vinum, og margir af þeim eru í neyslu því miður, þá veit ég alltaf um a.m.k. 2 staði þar sem verið er að reykja á, og ef þeim langar að fara að fá sér eins og einn smók þá er það ekki málið að finna sér stað. Þetta eru kannski smá ýkjur, en samt ekki svo mjög. Ég meina, hass er ólöglegt, fíkniefni eru ólögleg, það bara á ekki að vera svona auðvelt að komast í þau. Og hvað myndi koma í veg fyrir það? Meiri agi í lögreglunni, stærri hópur af þeim, vopnaðri hópar jafnvel. Ég er ekki með neina töfralausn, það eina sem ég veit að sem íslenskur ríkisborgari og samfélagsþegn þá finnst mér ég ekki lifa við öryggi í íslensku samfélagi. Við erum með lága innbrots- og líkamsárásartíðni, en nauðgunar- og fíkniefnamálstíðninar eru háar, og ef öll fíkniefnamál væru skráð, sem þau eru greinilega ekki, þá væru þau lang hæðst.

Í öðru lagi: Af persónulegri reynslu get ég með fullri alvöru sagt þetta, mér finnst 86-90 kynslóðin er spillt og siðferðislaus, vanþroskuð. Það líður ekki sá dagur þegar ég sé lítil börn, undir 15 og jafnvel 14 vera að reykja eða blindfull niðri í bæ, nú eða að biðja fullorðnari aðila um að redda sér hassi. I’ve seen it all. Ég persónulega hef allveg hagað mér sæmilega gegnum tíðina, en núna þar sem að öll mín kynslóð er samansett af allskonar viðbjóðsliði þá fæ ég á mig blett, ég er stimplaður. Minn vinahópur, þeir sem eiga það ekki skilið, eru stimplaðir. Þetta er algjört óréttlæti. Ég saka þá sem stimpla okkur ekki um neitt þar sem að það er ekkert skrítið að þeir geri það. Ég fór t.d. í Deigluna um daginn og fór á málverkasýningu afa míns, sem var btw frábærlega vel heppnuð, til hamingju afi! :) Um það er ekkert að segja nema að þegar ég fór út þá mætti ég gamalli konu í dyragættinni. Ég er svo mikill herramaður að ég hélt hurðinni opinni fyrir henni. Svo labbaði hún inn og ég brosti mínu breiðasta, þegar hún snéri sér við með rosalega skeifu á munninum og sagði: “Dóphaus.” Eða mér heyrðist það allaveganna. Mér hefur aldrei verið jafn brugðið. Þetta sýnir bara hvað mín kynslóð er öll stimpluð sem dópistar, fyllibyttur og reykstrompar. Enda ekkert skrítið, mér finnst samt leiðinlegt að við sem erum kynslóðinni til sóma skulum fá þetta yfir okkur þar sem að við eigum það ekki skilið. Hvers vegna fáum við þetta yfir okkur? Jú, vegna þess að við kjósum að eiga vini sem eru í þessum máli, dópi.

Í þriðja lagi: Fíkniefni eru ógeðsleg. Það fer ekki á milli mála. Það má hlusta á endalaus rök varðandi það hvað þau hafa betri áhrif á huga og líkama heldur en áfengi. Ég hef persónulega fengið allveg yfirum nóg af rökum um jákvæð áhrif eiturlyfja og hef því ákveðið að hlusta ekki á meiri jákvæð rök um þau. Þau eru ólögleg á Íslandi, þau skaða minnið, heilastarfsemi og aðra líkamsstarfsemi sem að áfengið gerir ekki, og áfengi er ekki ólöglegt. Mér finnst það næg rök til að vera ekki að notast við þau. Þegar verið er að reykja hass þá fara allskonar efni saman og blandast og þú ert að sjúga inn í þig a.m.k. 2000 efnum af allskonar ógeði. Þetta er rosalega ánetjandi. Þeir sem vilja lesa um þetta frekar bendi ég á: www.saa.is Eitt það sem eiturlyfjaneitendur skilja ekki varðandi það að taka inn eiturlyf er það að þeir hafa ekki bara áhrif á sjálfa sig. Þeir verða til þess að hinir sem þeir umgangast og þykir vænt um verða stimplaðir. Ég er stimplaður. Núna gætum við verið hip og kúl og sagt: “Mér er allveg sama hvað öðrum finnst.” Það bara virkar ekki í þessu samfélagi. Ég vil ekki að mér sé neitað um vinnu, neitaður aðgangur að veitingastað, neitað um íbúð eða aðgang að kaffihúsi vegna þess að samfélagið hefur stimplað mig. Það hefur allveg gerst. Svo er það ekkert spennandi að allir haldi að maður sé einhver dópisti. Samfélagið í dag krefst þess að maður sé ekki stimplaður til þess að geta lifað hagsældarlífi í því, sem að ég ætla mér að gera í framtíðinni.

Hvernig á ég að geta gert það þegar það eru eiturlyf á hverju strái? Og langar mig að vera partur af siðspilltu samfélagi þar sem löggæslan er svo góð sem engin og komandi kynslóðir eru samansafn af plebbum og aumingjum?


» 38 hafa sagt sína skoðun

11.06.2006 23:54:08 / Archangel

Rvk ferð 9-11.Júní

Já sem sagt ég lagði upp í þessa svaðilför ásamt Antoni og Fúsa um 2-3 leytið á föstudeginum 9.Júní. Ég var þó ekki skemmtilegri ferðafélagi en það að ég svaf alla leiðina hehh. Bílveiki eða svefn, svolítið auðvelt val. Ekki er neitt meira um það að segja heldur en að um 8 leytið var ég kominn til pabba og hitti konuna hans og Hildi sis Kolbeinn bro og Ammú kom svo líka fyrir rest og við snæddum saman indælis persneskann mat:):). Um kvöldið fórum við Hidda svo samfó niðrí miðbæ þar sem ég fór á hjá Fríkirkjunni að ná í hana fröken Kötlu sætu í nýja pilsinu sínu. Við tvö þrömmuðum svo á Kaffi Vín og hittum Ellu, Sunnu litu, Christínu og Önnu Margréti þar. Svo plötuðum við Steina og Mána til að koma og heilsa upp á okkur, karlmenn, svo einfaldir ;) hehe nei nei grín :):):). Katla þurfti þó að fara snemma og þar sem að ég var greinilega ekki nógu og mikið skemmtanaefni þá fóru þeir líka heim að vera "feitir" eins og þeir orðuðu það. Iss. Eftir það komu svo Benni og Villi vinur hans og einhver annar gaur. Ásamt þeim komu líka Jói, Siggi og Atli, og já það er enn annar Atli á meðal vor! Ég og hann vorum einmitt að furða okkur á því hvað það væru margir Addar og Atlar. Síðan fór ég bara um 3 heim til Hiddu sys og við fórum svo heim til pappz að sofa.Síðan vaknaði ég um 13:00 leytið að laugardeginum 10.Júní hjá pabba, kvaddi hann og allt liðið og fór til Adda minn kæra vins í kópavoginum með dótið mitt. Þaðan fórum við svo með Elfu í kringluna og hittum Kötlu. Addi keypti sér orkudrykki og ég ástlegar pils-buxur sem ég elska! Geta verið pils, buxur eða Zen-buxur! Gargandi snilld:D. En já, síðan fórum við heim til Adda aftur og ég skellti mér í sturtu meðan Addi var að sofna yfir nintendo með Kötlu hehe. Svo fengum við Katla The Gothmobile og fórum heldur svöl á honum aftur í kringluna að borða og síðan á Kaffi Vín að hitta Bjarka og Venna, og það gladdi mig rosalega mikið að sjá þá aftur:) Katla þurfti svo að fara og ég knúsaði hana í klessu. Síðan setti ég bara á mig gervineglur meðan Bjarki fór í ríkið í Afríku og ég bara spjallaði við Fanney á meðan mér til dægrastyttingar:). Þau Bjarki og Fanney fóru svo með mér til Adda þar sem að við vorum eitthvað að hanga og ég gerði Bjarka fínan:) Svo fórum ég Addi Fanney og Bjarki og náðum í Ellu og við rúntuðum við Cher og Spice Girls, svölust! Þaðan fórum við á plandið hjá kaffi vín og ég fékk ílla fengna ömmumola!:D. Þar fóru Bjarki og Fanney og ég, Addi og Ella fórum svo í party til Atla Freys sem átti afmæli, til hamingju aftur elskan!:D. Þaðan fórum við svo bara á rúntinn, hittum Benna og Arnar Ara fyrir utan Grand Rock, sem og Andra sem ég hitti í afmælinu hennar Ellu og Dag son hans Mána bróður pabba. Skondinn heimur. Þaðan fórum við á kaffi vín og pikkuðum upp Örnu lesbo á leiðinni sem var æðislegt:). Madame Roxanne is my pimp with the Italian accent and I am her prostitude! Og þaðan á Kaffi vín. Eftir það fór ég bara og gisti heima hjá Benna:). Ég vaknaði svo um 13:00 leytið á sunnudeginum 11.Júní og fór frá Benna að hitta Anton sem náði í dótið mitt til Adda og við fórum þaðan í kringluna, fórum þangað svolítið oft, og ég hitti Venna og Bjarka aftur:) Það var best:) Og ég náði að borða með þeim og alles:) Síðan þurftum við að fara svona uppúr 3 og ég svaf aftur alla leiðina heim. Núna er ég sem sagt bara kominn heim og fer að vinna á morgun. Hæstánægður með ferðina. Góða nótt :)


» 8 hafa sagt sína skoðun

09.06.2006 14:38:11 / Archangel

Prófin búin =)

Jæja þá er vorannatíð MA búin og ég er hæstánægður ! Einkunnir voru eftirfarandi:

Enska 9

Félagsfræði 7

Franska 8

Íslenska 6

Lífsleikni 8

Skólasókn 9

Stærðfræði 6

Ég er bara nokkuð ánægður sko :) Nema þá kannski með Íslenskuna og félagsfræði.. ég hefði getað lagt meira á mig í þessum sagnaritun og dæmi :/

Ég er orðinn stúdent í stærðfræði!! Það er svo best!! :D


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.06.2006 18:26:35 / Archangel

Dauðdagi minn?

Samkvæmt testi sem ég tók á Quizfarm þá mun ég deyja svona =>

You scored as Cut Throat. Your death will beby a slit/cut throat,
maybe beacuse you are a foreign person or in some gang. Don't do gangs.

Cut Throat

73%

Bomb

67%

Gunshot

60%

Posion

53%

Stabbed

47%

Disappear

40%

Eaten

40%

Natural Causes

33%

Disease

27%

Accident

20%

Suicide

20%

Drowning

13%

Suffocated

7%

How Will You Die??
created with QuizFarm.com


Þetta er hughreystandi ... ég vill ekki deyja svona :s I hate knives!!

» 4 hafa sagt sína skoðun

04.06.2006 19:09:59 / Archangel

Karlmenn

Jújú, það hlaut að koma að því, biturleika blogg um karlmenn. Nú skulið þið lesa nöldrið í mér og ég vil fá góð comment á þetta takk fyrir :)

hey kafagras í íslenskri orðabók þýðir mikið gras :PKarlmaður : karlkyns mannvera. Karlmannlegur : Gerðalegur

Ég segi : Karlmannlegur : TIL-gerðarlegur.

Ég vil líka vitna í Cher = "Men are luxury, not a necessity"

Ef ég á að tala út frá persónulegri reynslu með karlmenn, þá verð ég að segja að þeir eru yfirborðskenndir. Ég er ekki að segja að kvenmenn séu það ekki, köld eru kvennaráð og allt það. Þó er kannski betra að segja : Íllt er að eiga þræl að einkavin, sbr. kona og karlmaður sem eru *vinir.* hehe ;) karlmenn, svo einfaldir.

Ég er með þá kenningu í gangi að karlmenn séu yfirborðskenndir vegna þess hve einfaldir þeir eru. Því jú, karlmenn eru afar einfaldir. Sumir eru gáfaðri, aðrir siðmenntaðir, sumir anlega sterkir og geta allveg verið fullir af dyggðum, en eitt eiga þeir allir sameiginlegt = miðpunktur allrar þeirra starfsemi er í klofinu á þeim.

Ég hef alltaf haldið að inná milli gangandi kynlífsmaskínanna væru *góðir strákar* svona, unique strákar sem hugsuðu ekki með klofinu, I was wrong. Ég tek það fram að ég er eingöngu að tala út frá minni persónulegu reynslu, sem og reynslu vinkvenna minna. Það er bara málið: þeir hugsa ekki hlutina fram í tímann. Þeir hugsa ekki út tilfinningaleg viðbrögð annarra. Ég myndi segja að þeir væru tilfinningalausir, en þá myndu þeir ekki geta náð honum upp, sem er það eina sem kemst að í menntunarsnauða heilahvelinu þeirra, þannig það passar ekki.

Og hvað er málið með að fara ekki eftir THE CODE!! Þeir sem ekki vita hvað ég er að tala um: The code er óskráð regla, óformlegt viðmið sem að flestir sem eru með einhverskonar siðferðiskennd fara eftir. Þú sefur ekki hjá, byrjar með eða yfir höfuð spáir í eða reynir við vin fyrrverandi kærustu/kærasta þinnar/þinns. Það er bannað! Það er möguleiki ef þú spyrð 3ja aðila um leyfi varðandi það og það er gefið, annars er það bara bannað. Það er ótrúlegt hvað strákar skilja ekki þessa reglu.

Og í lokin vil ég benda á að ég geri mér fulla grein fyrir því að ég er strákur, og nei ég myndi ekki skipta ef ég gæti. Mér finnst best að vera gaur, þó svo að karlmenn séu ofmetnir.

Au Revoir mes amis!


» 13 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 18:51:48 / Archangel

Myndir!

komnar myndir frá skólanum :D

» 9 hafa sagt sína skoðun

12.05.2006 10:12:15 / Archangel

Bloggfærsla góðan daginn!

Komiði sælar kæru eldhúsmellur!

Já ég er hérna bara í eyðu í skólanum og var að koma úr frönskuprófi. Það gékk trés bien! En kemur frönskukunnátta mín mér á óvart:)

Í gær fór ég í klippingu og starfsviðtal. Ég er hæstánægður með niðurstöðu beggja! Hárið á mér hefur bara hreinlega ekki verið svona stutt í manna minnum! Rosalega flott, skátoppur og alles:) Fór til hennar Hönnu Gunnu í klippingu, allveg gasalega fín kona, fór til hennar seinast líka. Fer á þriðjudaginn næsta í litun :) Svo fór ég í starfsviðtal hjá BM ráðgjöf og haldiði að ég hafi bara ekki verið ráðinn á staðnum! Þetta er fínt starf, 1000 kr. á tímann og plús fyrir það sem við seljum, ég seldi 6 dvd myndir á 4 og 1/2 tíma :) nokkuð gott held ég :)

Sem sagt; Addi er orðinn símadama! Huzzah!!=)

Ekkert annað markvert hefur á daga mína drifið held ég, svo er bara pælingin hvað ég á að gera næstu helgi.

1) Kjarnaskógur

2) Lilja's house

3) David's house

Yess... there are my options ... :) þetta kemur allt í ljós

Sjáumst seinna! =)

Að eilífu amen <333


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 08:01:31 / Archangel

haha!

Vildi bara benda ykkur á eina gasalega sæta mynd!


Eruði að sjá hvað Atli Vííí er mikið krútt? Awwww :D


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.04.2006 15:31:43 / Archangel

Myndir!

Það eru komnar myndir frá því að við vorum að nördast í kringum kirkjuna :D

» 8 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 13:09:31 / Archangel

Gleðiblogg!!

It's official, I love my friends!!

Já ég guggnaði á öllu þessu veraífýlu dæmi :) Sem betur fer held ég bara! Eftir langtíma drama allan föstudaginn, var sættum náð að mestu leyti að kvöldinu komnu. Það var grátið, samt í mínu tilfelli bara tárast, faðmast og kyssts. Þetta er fyrirgefið að hálfu leytinu til, að við munum alltaf muna eftir þessu, þetta fer alls ekki gleymt.

En það fer því miður að segja að aðeins hálft dramað var leyst. Það er ennþá drama milli mín og ákveðinnar stelpu, og hún er allveg að skapa sér það sjálf, og ég sé ekki fram á að fara að ná sáttum við hana á næstunni. En það verður ekki skrifað um það meira hér, yrði ábyggilega rekinn frá blog.central :P


Jæja! Sem sagt það var party hjá Soffíu á föstudagskvöldinu, sem byrjaði vel, endaði frekar skringilega. Fullt af fólki sem ég þekkti ekkert, og fólkið sem ég þekkti fór bara strax. Ég var mest allan tíman bara á rúntinum með Silju, Sævari, Kitty og Bubba, það var fínt sko :) Mér þykir svo vænt um Sævar!! :D Yndislegur drengur sko! Og stelpur sem lesa þetta, hann er á lausu kallinn ;)
Á laugardeginum var ekki mikið gert, ég vaknaði kl.17:00 þannig að ég var rosa þreyttur fram eftir kvöldmat, en þá fór ég og leitaði að Sævari og strákunum eins og fífl á vistinni, en þeir voru allir hjá Joseph (borið fram shvosseff) ohh strákar:$ En það leistist vel :) Svo náði ég í Kitty, Silju, Söndru og Bjarka og við fórum til Guggu að chilla :) Svo fórum við heim til mín í herbergið mitt að chilla, svo komu Andrés, Joseph og Andri og það var MASSAORGÍA!!!! Strákarnir stóðu sig mjög vel í henni sko ;) hahahah neeeei djók ;) náði ykkur!!! :D Allavegnna, þar var bara chill eins og ég sagði, rosalega þægilegt :) og ég tók myndir af strákunum mínum í webncam! Það vantaði samt Bubbör :(

Hérna er hann Andreas, sjáið hvað hann er fjallmyndarlegur með slétt hár!!

Og aftur, jámm ég sléttaði það *takk takk* Takið eftir Silju þarna bakatil!

Svo vildi Andri vera með, svona líka póser :P

Og svo fékk hann kúrekahattinn minn, og Andreas tróð sér inná

Svo urðu þeir ástfangnir og knúsuðust! hehe :D Sætast :) Reyndar gaf ég þeim skipun um að faðmast eeeeen! :P
Já svo er þetta bara búið! Elska ykkur öll :D

» 6 hafa sagt sína skoðun

21.04.2006 16:04:01 / Archangel

Særður mjög

Its official, the thing that we call trust in this world is not meant to be solid. Ég er íllilega særður, og ég er ekkert að fara með það huldu höfði. Ég er særður og vonsvikinn. Þetta ílla bakslag hefur sett mig útaf laginu, og það er stórt. Vinir mínir gengu margir hverjir á bak orða minna, og gerðu það sem þau sögðuðst ekki ætla að gera. Eftir allt sem þau sögðu, allt hrósið sem ég var búinn að gefa þeim og allt stoltið sem ég var búinn að bera til þeirra, crushed. Ashes. Nothing left. Heimurinn er vondur, en þetta slær öllu út. Þegar sá tími er kominn að maður geti ekki treyst vinum sínum, þá er hann orðinn virkilega hrottalegur. Sá tími er víst að sigla inn. Ég skammast mín. Hvernig gat ég haldið að þau gætu bætt sig? Og fyrst þau gátu þóst vera að því, hvernig veit ég hvað annað þau eru að halda leyndu fyrir mér? Ég get aldrei treyst þeim eins vel, þau munu aldrei öðlast sama virðingasess hjá mér. Ég elska vini mína meira en allt. Það er varla neitt sem ég myndi ekki gera fyrir þau. En þetta var bara of mikið. Ég get ekki horft uppá þau eyðileggja sig svona, I just can't and I won't!!! Þið gerið ykkur ekki grein fyrir því hvað þetta er sárt. Þið getið vel sagt að þetta komi mér ekki við, en hvað það sem ógnar ykkur á einhvern hátt, það kemur mér við, þið sáuð til þess þann dag sem að við kynntumst. Ég elska ykkur ... en þið skiljið það greinilega ekki jafn vel og ég hélt... Aðalsteinn Vestmann Margrétarsson Moradi er á móti eiturlyfjum, og hann vorkennir þeim sem nota þau.

» 8 hafa sagt sína skoðun

16.04.2006 16:18:00 / Archangel

Hefur einhver séð skýin nýlega?

Páskar! Páskar! Það eru páskar! Lets all get fat and happy!! Já sem sagt, það eru páskar, nánartiltekið páskadagurinn sjálfur í dag, sunnudaginn 16. Apríl. Ég spái fyrir um óendanlegt súkkulaðiát út mánuðinn, haldiði að kallinn hafi ekki fengið nr.7? Úff að leggja það á eina manneskju að þurfa að borða þetta fjall af kalóríum, aleinn!! Úff ég þarf að fara að synda meira til að ná þessu af mér. *Addi feitabolla*Seinustu dagar hafa verið einkar skemmtilegir, því systir mín góð var í heimsókn:) Já ég og hún Hildur mín vorum bara á djamminu með fólki og svona, Kitty kom heim frá Rvk í tæka tíð til að leika sér með okkur og við fórum til hennar í fyrrkvöld, hittum frægt fólk;) Benna og Ómar :O Oh yeah burn baby burn! hehe ;)  Því miður voru Bubbi og Andri í sveitinni :( uss hvað við söknum þeirra :( og Atla Víðis líka sem er að sofa hjá öllum stelpunum í Varmahlíð ;) hehe ;) En já, þrátt fyrir það var gaman gaman :) Síðan fórum við á kaffihúsið Bláu könnuna með Gunnhildi frænku, Sigga tvíbba Kristjáns, Bjarka og Örnu sætu sem var líka í bænum, það var spez :P Svo kvöldið áður höfðum ég, Hildur, Gunnhildur og hún Linda Snilli farið á rúntinn, fórum í Brynju og keyptum ís og fórum uppí kirkjugarð að borða hann :D Ef þú ert ekki meðlimur hópsins okkar, þá muntu ekki skilja hvers vegna ;) hehe ;) Vorum ekki beinlínis í honum beint, meira svona í bílnum á bílastæðinu overlooking Eyjarfjörður hehe :P en samt var snjóskafl fyrir *sem ég keyrði EKKI á!* og hann svona eiginlega blockeraði allt mögulegt útsýni ... þrátt fyrir það undum við okkur við gott spjall, heljarinnar mikinn hlátur og ísinn góða :) komumst að því að Dívur eiga það til að vera vondar við Lindu litlu :( Awwww greyið *knús*


Hér má sjá eina Dívu sem var til umtölunar, nefnilega Cher. Ég reyndi að útskýra fyrir stelpunum litlu hvað hún er mikilvæg fyrir heiminn, en ég held þær hafi verið of skilningsvana til að skilja mig hehh =) I love you Cher! Please let me paint your toenails!! >_< Nújá, meira til umfjöllunar er það að ég er aftur orðinn virkur wow spilari, finally! það var rosalegt vesen með tölvuna mína, sem er stútfull af vírusum greyið litla, og accountið mitt. En það er allt komið í lag núna og ég er back in da business! Kominn á lvl.28 með female human mage minn ;) yeah! Og afhverju er ég að nefna þetta? Til að bögga Kitty ;) hehehe :D

Mynd tekin í Darnassus

Mynd tekin í Dolanaar

Mynd tekin í Dolanaar


Ég uppgötvaði líka teikningarstíl sem hræðir mig. Ég man í augnablikinu ekki hvað hann heitir, en hann gengur víst út á það að teikna animal-like humanoids sem eru í allskonar kynæsandi stellingum og að hafa mök eins og menn gera... það er allt til ... mér persónulega finnst þetta ekki rosalega æsandi, finnst það ábyggilega einhverjum :) Ég kýs frekar Yaoi takk fyrir  ^^

Wrarrr lets take a bath ;) haha! Talandi um ekki æsandi >_< held að niðurfallið myndi fyllast af hárum :!::!:Jæja þá er þetta bara orðið ágætt :) Sjáið hérna í lokin fallegar myndir sem ég fann á netinu! makes me wanna fall in love all over again ^^ Elska ykkur! :*

 

 


Já! og berjumst gegn hómófóbíu og stuðlum að réttindum samkynhneygðra!! Addi out!!



» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2